Hringvegur (1), Langitangi-Reykjavegur
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í endurbyggingu og breikkun auk lagnavinnu á Hringvegar (1) í Mosfellsbæ, á um 520 m kafla milli Langatanga og Reykjavegar. Verkið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Mosfellsbæjar, Landsnets og Veitna.
Helstu magntölur vegagerð
- - Rif malbiks og gangstétta 3.500 m2
- - Niðurtekt ljósastaura 22 stk.
- - Bergskeringar 3.000 m3
- - Fláafleygar og lausar skeringar 4.500 m3
- - Fyllingar í vegagerð 1.500 m3
- - Styrktarlag 2.250 m3
- - Burðarlag 1.420 m3
- - Malbik undirlag 4.970 m2
- - Malbik yfirlag 11.310 m2
- - Vegrið 770 m
- - Götulýsing, skurðgröftur og strengur 2.500 m
- - Ljósastaurar 43 stk.
Verkinu skal að fullu lokið 1. nóvember 2022.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með þriðjudeginum 30. nóvember 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 21. desember 2021.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.