Auglýst útboð
Hringvegur (1) - Brú á Kvíá, brúarsmíði
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í smíði nýrrar brúar á Kvíá í Öræfum. Brúin er 32 m löng í einu hafi. Landstöplar nýrrar brúar eru steyptir, grundaðir á boruðum stálstaurum innfylltum með steypu. Yfirbygging brúar samanstendur af lokuðum stálbitum með steyptu gólfi.
Helstu magntölur eru:
- Grjótvörn 564 m3
- Boraðir stálstaurar 624 m
- Vegrið 68 m
- Gröftur 1.250 m3
- Fylling við steypt mannvirki 9.000 m3
- Mótafletir 1.242 m2
- Steypustyrktarstál 44,7 tonn
- Steypa 374,4 m3
- Forsteyptar plötur 28 stk.
- Stálvirki 56,3 tonn
- Ryðvörn 336,7 m2
Verkinu skal lokið 20.
janúar 2020.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerðinni Búðareyri 11-13 á Reyðarfirði og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 24. júní 2019.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 16. júlí 2019 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.