Auglýst útboð
Hringvegur (1) - Brú á Brunná
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í smíði nýrrar brúar á Brunná í Skaftárhreppi.
Brúin er 24 m löng eftirspennt steypt bitabrú í einu hafi með steyptum endastöplum.
Helstu magntölur vegna brúa eru:
- Vegrið 78 m
- Gröftur 900 m3
- Fylling við steypt mannvirki 840 m2
- Mótafletir 1.038 m2
- Steypustyrktarstál 36,1 tonn
- Spennt járnalögn 3,8 tonn
- Steypa 372 m3
- Stálvirki 0,2 tonn
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 31. ágúst 2020.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 11. nóvember 2019 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 26. nóvember 2019.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.