Auglýst útboð

Hreinsun niðurfalla á Höfuðborgarsvæðinu og Suðursvæði 2023-2026

7.4.2023

Vegagerðin býður hér með út hreinsun niðurfalla og svelgja á Höfuðborgarsvæðinu og Suðursvæði (ásamt
Hvalfjarðagöngum) með holræsahreinsibíl og öðrum tækjum sem henta þykir. Heimild er til framlengingar samnings í allt að tvö ár með samþykki beggja aðila, eitt ár í senn.

Helstu magntölur fyrir hvert ár eru:

  •  Hreinsun niðurfalla 2.000 stk.
  •  Hreinsun svelgja 50 stk.
  •  Hreinsun fráveitulagna 40 klst.
  •  Myndun fráveitulagna 250 m
  •  Sérverkefni, viðbótarverk, holræsahreinsibíll 30 klst.

Verkinu skal að fullu lokið 31. maí 2026.

Útboðsgögnin eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með föstudeginum 7. apríl 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 9. maí 2023

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og heildartilboðsfjárhæðir. 

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Leiðbeiningarfyrir útboðsvefinn TendSign