Auglýst útboð

Holtsvegar (206), Hunkubakkar – Fjaðrárgljúfur

6.6.2021

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í endurbyggingu 2,15 km kafla Holtsvegar 206-01, Hunkubakkar – Fjaðrárgljúfur.

Helstu magntölur eru:

- Skeringar                       4.300 m³

- Lögn stálræsa                90 m

- Fyllingar                         2.400 m³

- Styrktarlag 0/90             4.000 m³

- Burðarlag 0/22               2.350 m³

- Tvöföld klæðing             14.400 m²

- Frágangur fláa               10.000 m²

Verklok eru 1. október 2021.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum 7. júní 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 22. júní 2021.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.