Auglýst útboð

Grindavík, dýpkun 2018

15.4.2018

Hafnarstjórn Grindavíkur óskar eftir tilboðum í dýpkun innan Grindavíkurhafnar.  

Um er að ræða stofndýpkun innan hafnar.

Helstu magntölur:

  • Dýpkun innan hafnar í kóta -8,0 m
  • Flatarmál dýpkunarsvæðis 4.764 m² 
  • Magn dýpkunarefna sem á að fjarlægja er um 13.318 m³

Verkinu skal lokið eigi síðar en 31. desember 2018.

Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni  Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 16. apríl 2018. Verð útboðsgagna er 5.000 kr.

Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 fimmtudaginn 3. maí 2018 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.