Endurbætur á Þingvallavegi (36) um Þjóðgarðinn
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í endurbætur Þingvallavegar (36) frá Þjónustumiðstöðinni að vegamótum við Vallaveg. Lengd útboðskafla er um 8,3 km. Verkið felst í styrkingu og breikkun núverandi vegar með áherslu á að auka umferðaröryggi. Fræsa skal núverandi klæðingu, breikka og hækka / lækka veginn eftir atvikum og leggja nýtt malbik. Sérstök áhersla er lögð á endurheimt staðargróðurs í vegfláa. Vinna skal efni til verksins í námu í Svartagili norðan við Þjónustumiðstöð. Verktími skiptist á árin 2018 og 2019.
Helstu magntölur eru:
- Efnisvinnsla 18.700
m3
- Skeringar 17.000
m3
- Fyllingar 10.000
m3
- Fláafleygar 5.500
m3
- Styrktarlag 10.800
m3
- Burðarlag 18.700
m3
- Malbik 6 cm 66.500
m2
- Upptaka, geymsla og frágangur gróðurtorfa 39.000 m2
- Frágangur
fláa 40.000
m2
- Ídráttarrör 8.300
m
- Vegrið 892
m
Verkinu skal að fullu lokið fyrir 1. ágúst 2019.
Útboðsgögn verða seld á minnislykli hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með þriðjudeginum 6. mars 2018. Verð útboðsgagna er 4.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 20. mars 2018 og verða þau opnuð kl. 14:15 þann dag.