Dýrafjarðargöng (60): Stjórnkerfi
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í gerð stjórnkerfis í Dýrafjarðargöng.
Framkvæmdin sem hér um ræðir nær yfir gerð stjórnkerfis í Dýrafjarðargöng en þau eru um 5,6 km löng, milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar. Stjórnkerfið hefur það hlutverk að fylgjast með ástandi í göngunum, skrá það, stjórna loftræsingu og láta vita af öllum bilunum ef hættusástand skapast. Innifalið í verkinu er hönnun/smíði stjórn- og neyðarsímaskápa, iðntölvubúnaður, forritun búnaðarins samkvæmt verklýsingu, prófun búnaðarins og gerð handbóka um kerfið.
Helstu magntölur verksins eru:
- · Stjórnskápar 11 stk.
- · Neyðarsímaskápar 17 stk.
- · Neyðarsímaklefar 4 við tæknirými
- · Iðntölvubúnaður 28 stýrivélar og fjar I/O
- · Netbúnaður 29 stk.
- · IP neyðarsímar 28 stk.
- · PC tölvubúnaður 2 stk.
- · Forritun stjórnkerfis samkvæmt kröfum
- · Stýriteikningar fyrir stjórnskápa
- · Gerð handbóka um kerfið
Verki skal lokið að fullu 31. ágúst 2020
Útboðsgögn (á tölvulykli) verða afhent hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 Reykjavík (móttaka) frá mánudeginum 8. apríl 2019.
Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 7. maí 2019 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 sama dag.