Auglýst útboð

Dalvíkurhöfn, dýpkun og landfylling

19.5.2017

Hafnarsjóður Dalvíkurbyggðar óskar eftir tilboðum í dýpkun og landfyllingu í Dalvíkurhöfn.

Helstu magntölur:

  • Dýpkun, um 60.000 m³ af lausu efni losað í landfyllingar.

Verkinu skal lokið eigi síðar en 30. september 2017.

Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) og á skrifstofu Dalvíkurbyggðar,  Ráðhúsinu á Dalvík, frá og með mánudeginum 22. maí 2017. Verð útboðsgagna er 5.000 kr.

Skila skal tilboðum á sömu staði fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 7. júní 2017 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.