Auglýst útboð

Borgarlína um Hamraborg, frumdrög

5.5.2023

Vegagerðin býður hér með út vinnu við frumdrög Borgarlínu um Hamraborg eftir Hafnarfjarðarvegi. Verkmörk í norðri eru á Hafnarfjarðavegi við sveitarfélagsmörk Reykjavíkur og Kópavogs og sunnanmegin á Hafnarfjarðarvegi við sveitarfélagsmörk Kópavogs og Garðabæjar. Verkefnið felur m.a. í sér frumdrög að borgarlínuleiðum og staðsetningu og útfærslu stöðvar/-a í Hamraborg. 

Gera skal útfærslu af legu Borgarlínu, ásamt staðsetningu og útfærslu stöðva, tillögu að götusniðum, og leiðum fyrir gangandi. Einnig skal gera kostnaðaráætlun fyrir framkvæmdakostnaði verksins.

Verkinu skal að fullu lokið 31. mars 2024.

Útboðsgögnin eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með föstudeginum 5. maí 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 6. júní 2023

Ekki verða haldnir sérstakir opnunarfundir en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu. Þann 27. júní 2023 verður bjóðendum tilkynntar niðurstöður stigagjafar og verðtilboð hæfra bjóðenda.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign