Auglýst útboð

Biskupstungnabraut - Hveragerði, 2. áfangi Biskupstungnabraut - Gljúfurholtsá (EES útboð)

31.1.2020

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í annan áfanga í breikkun Hringvegar milli Biskupstungnabrautar og Hveragerðis.

Lengd útboðskaflans er 7,1 km. Um er að ræða nýbyggingu Hringvegar að hluta og endurgerð núverandi Hringvegar að hluta, gerð nýrra vegamóta við Kirkjuferjuveg og Hvammsveg eystri, gerð hringtorgs við Biskupstungnabraut, nýbyggingu Ölfusvegar, breytingu Þórustaðavegar og Biskupstungnabrautar sem og gerð heimreiða. Hluti verksins er bygging fimm steyptra brúa og undirganga ásamt tveggja reiðganga úr stáli.

Einnig eru innifaldar breytingar á lagnakerfum veitufyrirtækja sem og nýlagnir og landmótun auk annarra þátta sem nauðsynlegir eru til að ljúka verkinu.

Helstu magntölur eru:

Vegagerð, helstu magntölur Magn Eining
Ídráttarrör 20.000 m
Fyllingarefni úr skeringu, umframefni úr fergingu 204.900 m3
Fylllingarefni úr námu 367.200 m3
Fláafleygar, efni úr skeringum 34.500 m3
Ónothæfu efni jafnað á losunarstað 79.100 m3
Stálræsi 1.500 m
Ofanvatnsræsi 670 m
Styrktarlag 157.700 m3
Burðarlag, óbundið 46.300 m3
Kaldblandað malbik 128.000 m2
Tvöföld klæðing 51.200 m2
Malbik 263.000 m2
Gróffræsun 42.500 m2
Vegrið 10.100 m
Götulýsing, skurður, strengur, lagning 8.000 m
Götulýsing, uppsetning ljósastaura 170 stk.
Yfirborðsmerkingar, línur 53.600 m
Brýr og undirgöng, helstu magntölur Magn Eining
Brúarvegrið 180 m
Gröftur 19.300 m3
Fylling 14.800 m3
Mótafletir 8.200 m2
Járnalögn 536.400 kg
Kaplar, 12 x ø16 (eftirspennt járnalögn) 14.800 kg
Steypa 3.200 m3
Vatnsvarnarlag undir malbik 1.900 m2
Reiðgöng, helstu magntölur Magn Eining
Stálplöturæsi, D = 4-5 m 76 m
Gröftur 4.300 m3
Fylling 1.500 m3
Jarðvegsdúkur 600 m2
Veitulagnir Magn Eining
Gröftur, lagnaskurðir 11.100 m3
Fylling, sandur 5.000 m3
Ídráttarrör 2.700 m
Hitaveitulagnir 2.100 m
Kaldavatnslagnir 3.700 m
Fjarskiptalagnir (rör) 13.400 m

Verkinu skal að fullu lokið 29. september 2023.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með föstudeginum  31. janúar 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 3. mars 2020.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Útboðið er einnig auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.