Steinadalsvegur (690) í Dalabyggð, Vestfjarðavegur (60) – Ólafsdalur
Vegagerðin kynnir fyrirhugaðar framkvæmdir á um 6,5 km löngum kafla á Steinadalsvegi (690), milli Vestfjarðavegar (60) og Ólafsdals í sunnanverðum Gilsfirði í Dalabyggð. Um er að ræða endurbyggingu núverandi vegar.
Kanna þarf matsskyldu framkvæmdarinnar samkvæmt lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.
Markmið framkvæmdarinnar er að bæta vegasamgöngur inn í Ólafsdal, auka umferðaröryggi og stuðla að greiðari samgöngum á svæðinu. Vegurinn verður breiðari en núverandi vegur, með bundnu slitlagi og bættum sjónlengdum.
Ekki er um eiginlega styttingu að ræða heldur fyrst og fremst vegabætur til að auka umferðaröryggi og greiðfærni, og efla menningartengda ferðaþjónustu á svæðinu.
Ýtarlegri upplýsingar um framkvæmdina má finna í meðfylgjandi skýrslu og teikningum.