Ráðstefnan Horfum fram á veginn var haldin til að skapa vettvang fyrir faglega umræðu um verkefnastýringu stórframkvæmda, viðhald innviða og framtíðarsýn í uppbyggingu samgöngukerfisins. Á ráðstefnunni komu saman sérfræðingar úr innlendum og erlendum innviðageira til að miðla þekkingu, reynslu og góðum starfsháttum við undirbúning, framkvæmd og rekstur stórra samgönguverkefna.

Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar var Dan Gardner, kanadískur rithöfundur og verðlaunablaðamaður, sem flutti erindið Getting Big Things Done on Budget and on Time. Hann fjallaði um lærdóm af stórum innviðaverkefnum víðs vegar um heim og hvaða þættir skipta mestu máli til að verkefni standist tíma- og kostnaðaráætlanir.
Meðal annarra fyrirlesara var Michael Ebbesen, framkvæmdastjóri reksturs og viðhalds hjá dönsku Vegagerðinni (Vejdirektoratet), sem fjallaði um eignastýringu og viðhald ríkisvega í Danmörku. Þá fluttu sérfræðingar Vegagerðarinnar erindi um meðal annars slitlög vega, gagnadrifna ákvarðanatöku í viðhaldi, verkefnastjórnsýslu, samgönguáætlun í framkvæmd og þróun verkefnastjórnunarkerfisins Varðar. Ráðstefnunni lauk með erindi um þær áskoranir sem geta haft áhrif á framgang stórra framkvæmda.
| Tími | Efni | Fyrirlesari |
|---|---|---|
| 09:00 | Opnun ráðstefnu | Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar |
| Ávarp ráðherra | Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra | |
| Getting Big Things Done on Budget and on Time | Dan Gardner, rithöfundur og verðlaunablaðamaður | |
| 10:20 | Kaffihlé | |
| Asset Management – Focus on Operation and Maintenance of State Roads in Denmark | Michael Ebbesen, danska Vegagerðin | |
| Protecting the Value of the Nation’s Greatest Asset | Arndís Ósk Ólafsdóttir Arnalds, Vegagerðin | |
| Pallborðsumræður | ||
| 12:10 | Hádegisverður | |
| Slitlög á mannamáli | Bergþóra Kristinsdóttir | |
| Gagnadrifin ákvarðanataka í viðhaldi | Oddur Hagalín Sigurðsson og Pálmi Þór Sævarsson | |
| Sjálfshjálparfyrirlestur fyrir stjórnendur á tímum óvissu og áhættu | Þórður Víkingur Friðgeirsson | |
| Verkefnastjórnsýsla hjá Vegagerðinni | Margrét Silja Þorkelsdóttir | |
| 14:40 | Kaffihlé | |
| Samgönguáætlun í framkvæmd: Hver er árangurinn? | Guðmundur Valur Guðmundsson | |
| Varðan – verkefnastjórnunarkerfi Vegagerðarinnar | Rúna Ásmundsdóttir | |
| Af hverju tekur allt svona langan tíma? | Bryndís Friðriksdóttir | |
| 16:10 | Ráðstefnulok og léttar veitingar | |

