Verkið felst í gerð Norðausturvegar á um 7,6 km kafla frá Langanesvegi og að Vatnadal á Brekknaheiði. Útboðskaflinn hefst við st. 0, sem er við ný vegamót Langanesvegar og Norðausturvegar og kaflinn endar við stöð 7600 sem er í Vatnadal á Brekknaheiði. Um er að ræða nýbyggingu vegar á stærstum hluta vegkaflans. Ný vegamót Langanesvegar og Norðausturvegar eru innifalin í verkinu. Gert er ráð fyrir að verkinu verði að fullu lokið 1. ágúst 2027.
Verktaki skal ljúka, í samræmi við útboðsögn, allri vinnu við verkið:
Norðausturvegur (85) um Brekknaheiði, Langanesvegur – Vatnadalur
Kaflinn allur er 7,4 km langur. Veglínan liggur að mestu á núverandi vegi nema fyrstu 2 km þar sem hann víkur verulega út af honum og um nýtt vegstæði verður að ræða. Tengingar verðar gerðar að sorphaugum og spennustöð. Engar brýr eru á kaflanum en ræsi verða sett þar sem við á.
Á hluta vegkaflans er nýr vegur byggður við hlið núverandi vegar og á um 300 m þar sem nýr vegur tengist núverandi vegi í Vatnadal er um að ræða endurbyggingu vegar. Ný vegamót Langanesvegar og Norðausturvegar og þéttbýlishlið eru einnig innifalin í verkinu. Vegurinn verður gerður samkvæmt vegtegund C8. Hönnunarhraði verður 90 km/klst.
Framkvæmdin er í samræmi við markmið samgönguáætlunar um að leggja vegi bundnu slitlagi, auka umferðaröryggi og tryggja greiðari samgöngur milli svæða.

Brekknaheiði

Brekknaheiði á Norðausturlandi