Vatns­dals­vegur (722) í Húna­byggð

  • TegundVegir
  • StaðaFramkvæmd hafin
  • Verktími2025–2027
  • Markmið
      Öruggar samgöngurGreiðar samgöngurJákvæð byggðaþróun
  • Heimsmarkmið
      8. Góð atvinna og hagvöxtur9. Nýsköpun og uppbygging
  • Flokkar
      EndurbæturBundið slitlagVerktaki - Vörubílafélag Mjölnis
  • Svæði
    • Norðurland

Vegagerðin stendur fyrir endurbyggingu á Vatnsdalsvegi (722) á 14,9 km löngum kafla í Vatnsdal í sveitarfélaginu Húnabyggð. Vegurinn er hluti af grunnkerfi samgangna á svæðinu og gegnir mikilvægu hlutverki fyrir íbúa, atvinnulíf og umferð um dalinn. Eldri vegur er með malaryfirborði og uppfyllir ekki öryggiskröfur Vegagerðarinnar, hvorki hvað varðar burðargetu, yfirborðsgæði né akstursöryggi.

Tilgangur framkvæmdarinnar er að bæta vegasamgöngur um Vatnsdal, auka umferðaröryggi og tryggja greiðari og öruggari ferðir um svæðið allt árið um kring. Endurbyggingin felur meðal annars í sér styrkingu vegarins og lagningu bundins slitlags, sem mun draga úr viðhaldsþörf og bæta akstursþægindi.

Framkvæmdin er í samræmi við markmið samgönguáætlunar um að auka umferðaröryggi og fjölga vegum með bundnu slitlagi, auk þess að stuðla að bættum samgöngum og aukinni þjónustu við íbúa og atvinnulíf á landsbyggðinni.

Endurbygging Vatnsdalsvegar verður innan byggðar í Vatnsdal á kaflanum frá Hringvegi (1) að Undirfellsrétt. Veglínan fylgir að mestu núverandi vegi, en á tveimur stöðum, við Hnjúk og Helgafell, er vikið lítillega frá núverandi legu til að bæta umferðaröryggi, auka yfirsýn og skapa betri akstursaðstæður. Með breytingunum er leitast við að draga úr hættum og bæta flæði umferðar um svæðið, einkum við krefjandi aðstæður.

Áætluð efnisþörf vegna framkvæmdarinnar er um 187 þúsund rúmmetrar. Gert er ráð fyrir að efnistaka fari að mestu fram úr skeringum meðfram veginum auk þriggja fyrirhugaðra náma á svæðinu. Með þessu er leitast við að nýta efni sem næst framkvæmdasvæðinu, draga úr flutningsþörf og lágmarka rask á umhverfi eins og kostur er.

Framkvæmdin var tilkynnt til Skipulagsstofnunar í samræmi við lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021. Tilkynningin er lögð fram á grundvelli 19. gr. laganna og fellur undir 1. viðauka, tölulið 10.08, flokk B, þar sem framkvæmdin nær yfir meira en 5 km kafla innan verndarsvæða, sbr. formála 1. viðauka, iii. lið 2. töluliðar 2. viðauka. Markmið ferlisins er að meta áhrif framkvæmdarinnar á umhverfi og tryggja að tekið sé tillit til viðkvæmra svæða og hagsmuna.

Verkið var boðið út í ágúst 2025 og var samið við Vörubílafélag Mjölnis ehf. í september sama ár. Var félagið lægstbjóðandi en tilboð þeirra hljóðaði upp á rúmlega 77% af áætluðum verktakakostnaði.


Kort af framkvæmdasvæði

Kort af framkvæmdasvæði