Skaga­vegur (745), Harrastað­ir – Bruna­náma

  • TegundVegir
  • StaðaFramkvæmd hafin
  • Verktími2026–2027
  • Markmið
      Greiðar samgöngur
  • Heimsmarkmið
      9. Nýsköpun og uppbygging
  • Flokkar
      EndurbæturViðhaldVerktaki - Vörubílafélag Mjölnis
  • Svæði
    • Norðurland

Vegagerðin stendur fyrir framkvæmdum á tæplega 7 km löngum kafla á Skagavegi (745), milli Harrastaða og Brunanámu á Skagaströnd í Húnabyggð. Um er að ræða endurbyggingu núverandi vegar. Engin breyting verður á legu hans. Markmið framkvæmdarinnar er að bæta vegasamgöngur á svæðinu, auka umferðaröryggi íbúa og vegfarenda á Skagavegi (745) og stuðla að greiðari samgöngum á Skagaströnd.

Núverandi vegur uppfyllir víða ekki kröfur veghönnunarregla og verður nýr vegur hærri og breiðari en núverandi vegur, með bundnu slitlagi, bættum sjónlengdum og öruggum hliðarsvæðum. Framkvæmdin mun liggja nærri verndarsvæðum, þ.e. votlendi og friðlýstum fornminjum. Í útboðsgögnum verður lögð áhersla á að raska ekki landi utan skilgreinds framkvæmdasvæðis.

Áætluð efnisþörf nýs vegar er um 97 þús. m3og er efnistaka fyrirhuguð úr þremur opnum námum í nágrenni við fyrirhugað framkvæmdasvæði. Kostnaðaráætlun er um 630 millj. kr. og er framkvæmdin fjármögnuð með fjárveitingu á samgönguáætlun til tengivega þar sem markmiðið er að styrkja og leggja bundið slitlag á umferðalitla tengivegi.

Vegagerðin telur að framkvæmdin hafi ekki í för með sér umtalsverð áhrif á umhverfið vegna umfangs, eðlis eða staðsetningar. Framkvæmdin er í samræmi við markmið samgönguáætlunar um að auka umferðaröryggi. Kynning fór fram í Skipulagsgátt frá 14 mars til 17 apríl 2025. Umsagnir má finna á eftirfarandi slóð: https://skipulagsgatt.is/issues/2025/244.

Verkið var boðið út í febrúar og var Vörubílafélag Mjölnis ehf. lægstbjóðandi í verkið, en tilboð þeirra hljóðaði upp á 91% af áætlaðum verktakakostnaði. Áætluð verklok eru haustið 2027.


Kort af framkvæmdasvæði

Kort af framkvæmdasvæði