8. júní 2026
Helstu útboðs­verk ársins

Vegagerðin býður út fjölmörg verkefni á árinu. Verkin eru af ýmsum stærðargráðum, bæði viðhaldsverkefni og stærri nýframkvæmdaverkefni. Hér að neðan verða talin upp stærstu verkefnin sem boðin verða út á hverju svæði Vegagerðarinnar auk nokkurra verkefna í höfnum landsins. Listinn er alls ekki tæmandi en hægt er að skoða öll útboð Vegagerðarinnar á vefsíðu stofnunarinnar. Þessi grein birtist fyrst í 2. tbl. Framkvæmdafrétta Vegagerðarinnar.

Kort af útboðsverkum á Vestursvæði.

Kort af útboðsverkum á Vestursvæði.

Vestursvæði

01: Vestfjarðavegur (60) um Gufudalssveit.  Verkið snýst um þverun Gufufjarðar og Djúpafjarðar með 210 metra langri brú í Djúpafirði svo og frágangur og klæðing á vegir yfir Djúpafjörð og Gufufjörð. Áætlað útboð er í maí en gert er ráð fyrir verklokum áramótin 2027-2028.

02: Snæfellsnesvegur (54), Stykkishólmur — Svelgsá.  Verkið felst í nýbyggingu og endurbótum á rúmlega 4 km kafla á Snæfellsnesvegi. Útboð er áætlað vorið 2026 en verklok eru áætluð vorið 2027.

03: Stykkishólmsvegur (58), Þingvallavegur — Stykkishólmur.  Verkið snýst um lagfæringar á gatnamótum Snæfellsvegar og Stykkishólmsvegar ásamt endurbótum á tæplega 4km kafla Stykkishólmsvegar. Útboð var opnað í febrúar en lægstbjóðandi var Borgarverk ehf. Verklok verða í haust á þessu ári.

04: Akrafjallsvegur (51), hringtorg og undirgöng.  Verkið felst í að gera hringtorg, steypa undirgöng, gera göngustíga, setja lýsingu og setja upp vegbúnað við nýtt hringtorg. Um er að ræða samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Veitna, Landsnets og Akraneskaupstaðar. Útboð fer fram í maí, en verklok eru áætluð haustið 2027.

05: Snæfellsnesvegur (54), Brúarhraun — Hraunsmúli.  Um er að ræða endurbætur á um 6 km kafla á Snæfellsnesvegi. Innifalið í endurbyggingunni er gerð fyllinga, útlögn styrktar- og burðarlags, útlögn tvöfaldrar klæðingar ásamt lögn ræsa, vinnslu og útvegum efnis í burðar- og styrktarlög. Útboðið var auglýst í byrjun febrúar, eitt tilboð barst í verkið frá Borgarverki ehf. Verklok verða í september á þessu ári.

06: Bíldudalsvegur (63), um Mikladal, áfangi 2.  Verkið snýst um endurbætur á rúmlega 3 km vegkafla. Útboðið fer fram í maí en verklok verða vorið 2027.

07: Vestfjarðavegur (60), Erpsstaðir — Haukadalsá.  Verkið snýst um endurbætur á 6 km vegkafla. Útboðið verður haustið 2026, verklok eru áætluð haustið 2027.

08: Útnesvegur (574), við Enni, rofvarnir og fyllingar.  Verkið felst í gerð sjóvarnar meðfram Útnesvegi, vestan við Ólafsvík. 50 metrar af núverandi grjótfláa verða endurbyggðir en sjóvarnargarðurinn verður lengdur um 330 metra. Útboðið var auglýst í febrúar. Lægstbjóðandi var Stafnafell ehf. Snæfellsbæ. Verklok eru áætluð haustið 2026.


Kort af útboðsverkum á Norðursvæði.

Norðursvæði

09: Skagavegur (754), Harrastaðir — Brunanáma.  Verkið felst í endurbyggingu Skagavegar á um 7 km kafla auk nýbyggingar á um 7 km kafla auk nýbyggingar á um 0,7 km kafla á Brekknavegi. Um er að ræða endurbyggingu núverandi vegar að mestu leyti fyrir utan færslu á veglínu, um 500 m norðan við bæinn Hof. Einnig felst í verkinu færsla tengingar Brekknavegar (7245) og nýbygging hans á um 700 m kafla. Útboð var auglýst í febrúar en lægstbjóðandi var VBF Mjölnir ehf. Selfossi. Verklok eru áætluð haustið 2027.

10: Bárðardalsvegur vestri (842), Hringvegur — Öxará.  Verkið felst í ný- og endurbyggingu Bárðardalsvegar vestri á um 3,1 km vegkafla auk byggingar 8,5 m langrar brúar yfir Öxará. Innifalið í verkinu er uppbygging Öxarárvegar sem námuvegar á um 1,2 km kafla auk breytinga á vegamótum við Hringveg og lengingar vegriða á brú yfir Hrúteyjarkvísl. verkið var boðið út í apríl 2026 og verklok eru áætluð júlí 2027.

11: Norðausturvegur (85í Þingeyjarsveit, um Skjálfandafljót í Kinn.  Verkið felst í ný- og endurbyggingu Norðausturvegar á um 10 km kafla. Framkvæmdin er í umhverfismati en fyrirhugað er að byggja allt að þrjár nýjar brýr, yfir Rangá og Skjálfandafljót. Fyrirhugað er að bjóða verkið út í lok árs 2026 og eru verklok áætluð 2028.


Kort af útboðsverkum á Suðursvæði.

Suðursvæði

12: Búðarfossvegur (23), Þjórsárdalsvegur — Landvegur.  Lagður verður nýr 7,5 km vegur milli Þjórsárdalsvegar við Árnes og að Landvegi. Einnig verður gert nýtt hringtorg við Árnes og lagðir nýir hliðarvegir. Þá verður byggð 202 m löng brú yfir Þjórsá við Búðafoss. Áætlað er að bjóða verkið út í júní 2026 og verklok eru áætluð áramótin 2029-2030.

13: Laugarvatnsvegur (37), Laugarvatn — Hjálmsstaðir.  Verkið snýst um styrkingu, breikkun og malbikun á 3 km kafla Laugarvatnsvegar. Verkið felst í að jarðvegsskipta fyrir breikkun í köntum, fræsa upp núverandi slitlagi á veginum, jafna því út og breikka veg lítilsháttar og keyra að jafnaði 20 cm þykku burðarlagi yfir, endurnýjun ræsa og malbika svo yfir. Útboð var auglýst í febrúar. Lægstbjóðandi var Óskatak ehf. Verklok eru áætluð í ágúst 2026.

14: Þorlákshafnarvegur (38), Lækur — Þrengslavegur.  Verkið felst í styrkingu, breikkun og lagningu bundins slitlags vegar sem er nú að jafnaði um 7 m breiður, í 8,0 m breiðan veg með 7,8 m breiðu bundnu slitlagi og 2 x 10 cm breiðum malar öxlum. Framkvæmdakaflinn sem um ræðir er um 3,0 km að lengd. Verkið var boðið út í febrúar en lægstbjóðandi var Þjótandi ehf. Verklok eru áætluð í haust.

15: Einholtsvegur (358), Drumboddsstaðir — Hrunamannavegur.  Verkið snýst um styrkingu, breikkun og klæðingu á 7,4 km vegkafla Einholtsvegar í Bláskógabyggð, frá Drumboddsstaðavegi að Hrunamannavegi. Verkið var boðið út í janúar, lægstbjóðandi var Þróttur ehf., Akranesi. Verklok eru áætluð í ágúst 2027.

16: Hringvegur (1) um Holtsnúp, hrunvarnir 2026.  Verkefnið felst í gerð hrunvarna meðfram Hringveginum við Holtsnúp undir Eyjafjöllum. Skorið er inn í hlíðina á um 360 m kafla og efni notað í lagfæringu vegfláa á um 1000 m kafla. Hrunvarnir úr svokölluðum gabion grindum verða reistar á um 300 m kafla. Verkið var boðið út í mars og lægstbjóðandi var Framrás ehf. í Vík. Verklok eru áætluð í ágúst 2026.

17: Hringvegur (1) um Hvolsvöll.  Verkefnið felst í endurbyggingu vegar, bættri umferðarstýringu, lagfæringu og fækkun vegtenginga og aðskilnaði akstursstefna með eyjum og afreinum á um 800 m löngum kafla Hringvegar um Hvolsvöll. Kaflinn nær frá afleggjara að tengivirki Landsnets austur yfir Dufþaksbraut. Ennfremur eru gönguþveranir bættar og stígatengingar að þeim. Stefnt er að því að bjóða verkið út í júní og að jarðvinnu og lagnavinnu verði lokið í ár en yfirborðsfrágangi verði lokið sumarið 2027.


Kort af útboðsverkum á Austursvæði.

Austursvæði

18: Jökuldalsvegur (923), Langagerði — Hákonarstaðir.  Verkið felst í endurbyggingu Jökuldalsvegar á rúmlega fjögurra km kafla frá Langagerði að Hákonarstöðum. Útboð verður auglýst maí og verklok áætluð haustið 2027.

19: Hringvegur (1um Krossá í Berufirði.  Verkið snýst um lögn ræsis í stað 12 metra langrar einbreiðrar brúar yfir Krossá auk styrkingar, breikkun og endurbótum á tæplega 5 km löngum vegkafla Hringvegar á Berufjarðarströnd. Útboð verður auglýst maí og áætluð verklok haustið 2026.

20: Stokksnesvegur (9720).  Ætlunin er að endurbyggja Stokksnesveg á ríflega 4 km kafla frá ristarhliði nálægt Hringvegi að Horni. Útboð verður auglýst í sumar og verklok áætluð haustið 2027.


Hafnargerð

A: Húsavík.  Stálþilsframkvæmd. 300 metra endurbygging og lenging á Þvergarði. Verkið verður boðið út í sumar.

B: Helguvík.  Gerð 390 m stálþils- og staurabryggju. Verkefni unnið fyrir NATO. Hönnunarútboð er í gangi. Verkefnið er ekki fjármagnað af hafnarbótasjóði.

C: Súðavík.  Steyping um 1.500 m² þekju við Langeyri. Útboðið var auglýst í lok mars og útboð opnuð 21. apríl. Áætluð verklok eru í nóvember 2026.

D: Landeyjahöfn.  Viðhaldsdýpkun 2026-2029. Útboð hefur þegar farið fram. Samið var við belgíska dýpkunarfyrirtækið Jan de Nul í apríl.

E: Höfn í Hornafirði.  Dýpkun Grynnslanna til þriggja ára. Útboð hefur þegar farið fram. Skrifað var undir verksamning milli Hornafjarðarhafnar og Boskalis Westminister Ltd. í febrúar.

 

Þessi grein birtist fyrst í Framkvæmdafréttum 2. tbl. 2026. Hlekkur á blaðið

Mynd af framkvæmdasvæði í Helguvík við Reykjanes.

Mynd af framkvæmdasvæði í Helguvík við Reykjanes.