Vegagerðinni hefur verið falið að ný- og endurbyggja Norðausturveg (85-02) um Skjálfandafljót í Kinn, milli Torfuness í Kaldakinn og Tjarnar í Aðaldal. Markmið framkvæmdarinnar er að auka umferðaröryggi vegfarenda og tryggja greiðari samgöngur. Þeim markmiðum verður náð með því að stytta vegalengdir á Norðausturvegi, laga og afmá krappar beygjur á kaflanum, gera hliðarsvæði aflíðandi, byggja tvíbreiðar brýr og lagfæra hættuleg vegamót.
Efnisyfirlit
Umferðaröryggi á kaflanum er ábótavant þar sem núverandi vegur er með kröppum og hættulegum beygjum og einbreiðum brúm, auk þess sem T-vegamót Norðausturvegar (85) og Aðaldalvegar (845) við Tjörn í Aðaldal eru varhugaverð. Við umrædd vegamót kemur Norðausturvegur (85) beint að vegamótunum og gera má ráð fyrir að ökumenn séu á töluverðum hraða þegar þeir koma að þeim og hafi því lítið svigrúm til þess að hægja á sér.
Vegagerðin telur núllkost, þ.e. óbreytt ástand í samgöngumálum á svæðinu ófullnægjandi miðað við núgildandi kröfur til umferðarmannvirkja. Með nýjum tvíbreiðum brúm á Rangá og Skjálfandafljóti í Kaldakinn, auk nýs vegar mun umferðaröryggi aukast til mikilla muna og umferð um svæðið verða greiðari en hún er nú.
Nýr vegur verður með góða hæðar- og planlegu og uppbyggður til þess að sporna við snjósöfnun á veginum. Hönnunarhraði vegarins verður miðaður við 90km/klst. hámarkshraða.
Umhverfismatsskýrsla um Norðausturveg (85-02) um Skjálfandafljót í Kinn í Þingeyjarsveit er aðgengileg hér að neðan. Skýrslan er til kynningar hjá Skipulagsstofnun í samræmi við lög nr. 111/2021 um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Skipulagsstofnun kynnti framkvæmdina með auglýsingu í Morgunblaðinu þann 22. janúar 2026 auk þess að óska eftir því að Þingeyjarsveit auglýsti hana á sínum miðlum.
Jafnframt er almenningi gefinn kostur á að kynna sér umhverfismatsskýrsluna í gegnum Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar á eftirfarandi slóð: Norðausturvegur (85) um Skjálfandafljót í Kinn – Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar.

Fyrirhugað framkvæmdarsvæði á Norðausturvegi