Framkvæmdin er liður í endurbótaaðgerðum á Örlygshafnarvegi. Vegagerðin stendur fyrir lagningu bundins slitlags á um 3,8 km kafla Örlygshafnarvegar milli slitlagsenda við Hvalsker og Kvígindisdals. Framkvæmt verður að öllu leiti í núverandi vegstæði og er framkvæmdin þess vegna ekki matsskyld.
Efnisyfirlit
Núverandi vegur er malarvegur af tegundinni C7, heildarbreidd 7 m, sem talinn er ekki hafa afkastagetuna sem þarfnast til þess að anna auknum ferðamannastraumi sem sækir m.a. í Látrabjarg.
Verkefnið var boðið út samhliða framkvæmdum vestar á Örlygshafnarvegi, um Hvallátur. Samið var við Flakkarann ehf. af Brjánslæk, en voru þeir lægstbjóðendur í framkvæmdina, rétt undir áætluðum verktakakostnaði.
Áætluð verklok eru seinni hluta 2026.

Mynd sýnir framkvæmdasvæði.