Örlygs­hafnar­vegur

  • TegundVegir
  • StaðaFramkvæmd hafin
  • Verktími2025–2026
  • Markmið
      Greiðar samgöngurÖruggar samgöngurJákvæð byggðaþróun
  • Heimsmarkmið
      9. Nýsköpun og uppbygging
  • Flokkar
      EndurbæturÖryggisaðgerðirBundið slitlagVerktaki - Flakkarinn ehf.
  • Svæði
    • Vestfirðir

Vegagerðin stendur fyrir endurbætum á tveimur köflum Örlygshafnarvegar (612). Markmið framkvæmdanna er að byggja upp og styrkja veg sem hefur séð mikla umferðaraukningu á síðustu áratögum og uppfyllir ekki öryggiskröfur sem vonast er eftir.

Í útboðsferli var ákveðið að bjóða framkvæmdirnar út samhliða í einu útboði. Framkvæmdir hófust 2025 og er áætlað að þeim ljúki seinni hluta 2026.

Á Örlygshafnarvegi (612) um Hvallátur er staðið fyrir færslu vegstæðis og nýbyggingu þar sem núverandi vegstæði er talið of nálægt frístundabyggð á svæðinu. Um Sauðlauksdal er einungis ráðist í endurbætur innan núverandi vegstæðis.

Hvorug framkvæmd er matskyld.