Ráðist var í framkvæmdir við nýja brú á Hringvegi (1-a3) um Hverfisfljót í Skaftárhreppi í Vestur-Skaftafellssýslu. Í tengslum við byggingu á brúnni var nauðsynlegt að endurbyggja Hringveginn á kafla.
Ný brú yfir Hverfisfljót er 74 m löng og tvíbreið, en er hún staðsett 20 m neðan eldri brúar. Nýr vegur og brú voru samtals um 2,2 km lögn og var þar af 1,1 km nýlögn og 1,1 km endurbygging vegar. Einnig var byggður nýr áningarstaður við Hverfisfljót í stað eldri áningarstaðar, en hvarf hann undir nýrri veg. Áningarstaður þessi gefur fallegt útsýni að Lómagnúp og Öræfajökli og var þess vegna talið nauðsynlegt að byggja nýjan, öruggan og stærri áningarstað.
Ný brú var tengd núverandi vegakerfi með um 0,5 km löngum vegi vestan Hverfisfljóts og um 1,4 km löngum vegi austan Fljótsins. Kaflinn endar við nýja brú á Brunná sem var tilbúin í nóvember 2020. Einnig fólst í framkvæmdinni endurbygging Hringvegarins á 0,2 km kafla austan Brunnár. Nýir vegir hljóðuðu því samtals á um 2,1 km og var þá framkvæmdin (með nýrri brú) alls um 2,2 km löng.
Tilgangur framkvæmdarinnar var að fækka einbreiðum brúm á Hringvegi. Markmiðið var einnig að auka umferðaröryggi og stuðla að greiðari samgöngum. Með nýjum vegi, nýrri tvíbreiðri brú á Hverfisfljót og nýjum og stærri áningarstað hefur umferðaröryggi aukist til mikilla muna og umferð um svæðið töluvert greiðari en hún var áður.
Í samþykktri 5 ára samgönguáætlun 2020-2024 var gert ráð fyrir 500 milljónum til breikkunar brúa á hverju ári 2020-2024. Ný brú á Hverfisfljót féll undir þann lið. Endur- og nýlagning vegarins fellur undir viðhald vega, þ.e. styrkingar og endurbætur.
Framkvæmdin var ekki matsskyld skv. 5. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000 með síðari breytingum.
Framkvæmdum var hagað þannig að neikvæð áhrif þeirra á umhverfið voru sem minnst. Samráð var haft við hagsmunaaðila og sveitarfélag við undirbúning framkvæmdarinnar.
Verktaki framkvæmdar var ÞG verk en stóðu þeir einnig að framkvæmdum við nýja brú um Núpsvötn á sama tíma.