Opnun tilboða 13. júli 2021. Bygging brúar á Hverfisfljót og Núpsvötn ásamt endurgerð vegakafla beggja vegna.
Hverfisfljót: Verkið felst í byggingu nýrrar 74 m langrar og tvíbreiðrar brúar yfir Hverfisfljót, um 20 m neðan núverandi brúa. Brúin verður verður samverkandi stálbitabrú með steyptu gólfi í þremur höfum. Einnig er innifalin vegagerð til að tengja nýja brú við núverandi vegakerfi. Nýr vegur og ný brú verða í nýju vegstæði á 1,1 km löngum kafla og endurbyggður vegur í núverandi vegstæði á 1,1 km löngum kafla. Nýir vegir verða því um 2,1 km. Einnig verður byggður nýr áningarstaður við Hverfisfljót í stað núverandi áningarstaðar sem hverfur undir nýjan veg.
Núpsvötn: Verkið felst í byggingu nýrrar 138 m langrar tvíbreiðrar brúar yfir Núpsvötn á Hringvegi (1), ofan núverandi brúarstæðis, auk tengivega við núverandi vegakerfi beggja vegna. Brúin verður eftirspennt steinsteypt brú með steyptu gólfi í fimm höfum. Nýr vegur og ný brú verða í nýju vegstæði á 1,9 km löngum kafla. Einnig verður byggður nýr áningarstaður vestan nýju brúarinnar.
Helstu magntölur eru: | |
Gröftur | 650 m3 |
Fylling | 86.500 m3 |
Styrktarlag | 22.200 m3 |
Burðarlag | 8.800 m3 |
Tvöföld klæðing | 40.400 m2 |
Vegrið | 1.376 m |
Mótafletir | 3.900 m2 |
Steypustyrktarjárn | 249.000 kg |
Spennt járnalögn | 37.700 kg |
Steinsteypa | 2.700 m3 |
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik kr. |
---|---|---|---|
Íslenskir aðalverktakar hf., Reykjavík | 1.671.860.903 | 117,5 | 1.529.584.803 |
Eykt ehf., Reykjavík | 1.540.716.808 | 108,3 | 1.398.440.708 |
Áætlaður verktakakostnaður | 1.422.761.000 | 100,0 | 1.280.484.900 |
Ístak hf., Mosfellsbær | 1.425.108.228 | 100,2 | 1.282.832.128 |
ÞG verktakar, Reykjavík | 142.276.100 | 10,0 | 0 |