Ný brú á Núpsvötn í Skaft­árhreppi

  • TegundBrýr
  • StaðaFramkvæmd lokið
  • Verktími2021–2023
  • Markmið
      Öruggar samgöngurGreiðar samgöngur
  • Heimsmarkmið
      8. Góð atvinna og hagvöxtur9. Nýsköpun og uppbygging11. Sjálfbærar borgir og samfélög
  • Flokkar
      SamgöngukerfiðEndurbæturStofnvegirVerktaki - ÞG verk
  • Svæði
    • Suðvesturland

Vegagerðin stóð fyrir framkvæmdum á nýrri 150 m langri brú á Hringvegi (1) (vegkafli 1-a1) um Núpsvötn í Skaftárhreppi í Vestur-Skaftafellssýslu. Í tengslum við byggingu nýrrar brúar var Hringvegurinn endurbyggður í nýrri legu á um 2,0 km löngum kafla. Samið var við ÞG Verk um smíði brúarinnar en hljóðaði tilboð þeirra nánast rétt upp á áætlaðan verktakakostnað.

 


Auk brúarsmíðinnar var einnig byggður nýr áningarstaður vestan Núpsvatna. Á þessum stað er fallegt útsýni í vesturátt að Lómagnúp og austurátt að Öræfajökli og því var nauðsynlegt að byggja nýjan, öruggan áningarstað. Hönnun áningarstaðarins tók mið af sambærilegum áningarstað við Hverfisfljót (sjá yfirlitsmynd í fylgiskjölum).

Tilgangur framkvæmdarinnar var að fækka einbreiðum brúm á Hringvegi og var markmiðið að auka umferðaröryggi og stuðla að greiðari samgöngum, en fyrrverandi einbreið brú við Núpsvötn var sú einbreiða Hringvegsbrú þar sem flest slys höfðu átt sér stað. Með nýrri tvíbreiðri brú á Núpsvötn og áningarstað var umferðaröryggi aukið til mikilla muna og umferð um svæðið varð greiðari en hún var fyrir. Verkefnið er unnið sbr. áherslu samgönguáætlunar á fækkun einbreiðra brúa á Hringvegi, en fækkaði þeim í einungis 29 talsins með tilkomu nýrrar Núpsvatnabrúar sem og brúar við Hverfisfljót, byggð samtímis þessari.