Reykja­nesbraut: Krýsu­víkur­vegur-Hvassa­hraun

  • TegundNýframkvæmdir
  • StaðaFramkvæmd hafin
  • Verktími2023–2026
  • Markmið
      Greiðar samgöngurÖruggar samgöngur
  • Heimsmarkmið
      8. Góð atvinna og hagvöxtur9. Nýsköpun og uppbygging11. Sjálfbærar borgir og samfélög
  • Flokkar
      Aðskilnaður akstursstefnuStofnvegirSamgöngukerfiðVerktaki - Íslenskir aðalverktakar
  • Svæði
    • Höfuðborgarsvæðið

Vegagerðin stendur að breikkun Reykjanesbrautar (41-15) í Hafnafirði, frá Krýsuvíkurvegi að enda fjögurra akreina brautarinnar á Hrauni vestan Straumsvíkur. Lengd vegkaflans er um 5,6 km og var þetta eini kaflinn á Reykjanesbraut, frá Ásbraut í Hafnarfirði að Njarðvík, sem ekki hafði verið breikkaður.

Tengd útboð


Áformað var að breyta vegkaflanum í 2+2 aðskildar akreinar, breyta mislægum vegamótum við álverið í Straumsvík, ISAL, útbúa vegtengingar að Straumi og Álhellu, byggja mislæg vegamót við Rauðamel og útbúa vegtengingu að Straumsvíkurhöfn og dælu- og hreinsistöð austan Straumsvíkur með undirgöngum. Einnig er áformað að byggja undirgöng fyrir gangandi og hjólandi rétt austan við álverið sem og eftirlitsstaði fyrir umferðareftirlit beggja megin Reykjanesbrautar, austan við Straumsvík.

Vegkaflinn var formlega opnaður þann 11. desember 2025 og er Reykjanesbraut nú tvöföld með aðskilda akstursstefnu alla leið til Njarðvíkur. Verktaki framkvæmdar var Íslenskir aðalverktakar, en tilboð þeirra hljóðaði upp á rétt tæplega 80% af fyrirhuguðum verktakakostnaði. Mannvit hf. sá um hönnun vegkaflans á meðan verkfræðistofan Hnit sá um eftirlit og ráðgjöf.


Framkvæmdakort

Sæki kort...
Krýsuvíkurvegur-Hvassahraun

Krýsuvíkurvegur-Hvassahraun


Myndband um breikkun Reykjanesbrautar


Tengdar fréttir