Haga­braut (286-01) í Rangar­þingi ytra

  • TegundVegir
  • StaðaFramkvæmd hafin
  • Verktími2025–2026
  • Markmið
      Greiðar samgöngurJákvæð byggðaþróun
  • Heimsmarkmið
      8. Góð atvinna og hagvöxtur9. Nýsköpun og uppbygging
  • Flokkar
      Bundið slitlagViðhaldEndurbæturVerktaki - Þjótandi
  • Svæði
    • Suðurland

Vegagerðin stendur fyrir framkvæmdum á rúmlega 7,4 km löngum kafla á Hagabraut (286), milli Landvegar (26) og Reiðholts í Holtum í Rangárþingi ytra. Um er að ræða endurbyggingu núverandi vegar. Markmið framkvæmdarinnar er að bæta vegasamgöngur á svæðinu, auka umferðaröryggi íbúa og annara vegfarenda og stuðla að greiðari samgöngum í Rangárþingi ytra.

Núverandi Hagabraut (286) er malarvegur sem víða uppfyllir ekki kröfur veghönnunarreglna. Nýr vegur verður hærri og breiðari en núverandi vegur, með bundnu slitlagi, bættum sjónlengdum og öruggum hliðarsvæðum. Ekki er um styttingu að ræða heldur fyrst og fremst vegabætur til að auka umferðaröryggi.

Framkvæmdin liggur innan verndarsvæða, þ.e. í jaðri lítt raskaðs votlendis og um mikilvægt fuglasvæði á Suðurlandsundirlendi. Framkvæmdum er hagað þannig að neikvæð áhrif þeirra verði sem minnst og verður mótvægisaðgerðum beitt til þess að minnka neikvæð umhverfisáhrif sem mest.

Verkið átti að fara í framkvæmd 2024-2025 en tafðist um ár og hófust þá framkvæmdir snemma sumars 2025. Áætluð verklok eru í lok sumars 2026.  Verkið var boðið út í apríl 2025 og var samið við Þjótanda ehf., á Hellu, mánuði síðar. Voru þeir lægstbjóðendur en tilboð þeirra hljóðaði upp á tæplega 82% af áætluðum verktakakostnaði.

Meiri upplýsingar má finna í kynningarskýrslu verkefnis hér að neðan.


Kort sýnir fyrirhugað framkvæmdasvæði

Kort sýnir fyrirhugað framkvæmdasvæði