Í verkinu felst nýbygging Búðafossvegar, á um 7,4 km löngum kafla frá Þjórsárdalsvegi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi að Landvegi í Rangárþingi ytra, bygging 204 metra stálbrúar yfir Þjórsá, gerð tengivega, heimreiðar og nýs hringtorgs, alls um 2,6 km.
Efnisyfirlit
Búðafossvegur
Brúin verður 204 metra löng tvíbreið stálbitabrú yfir Þjórsá, norðaustan við Búðafoss, milli jarðanna Minna-Hofs og Vindáss. Brúin mun þvera ána á svokölluðu Hofsvaði, um kílómetra ofan við Búðafoss.
Á gatnamótum Þjórsárdalsvegar og Búðafossvegar verður gert nýtt malbikað hringtorg, auk tengivega/heimreiða á fjórum stöðum, alls um 2,6 km.
Í verkinu felst einnig uppsetning tveggja reiðganga úr stálplötum, ræsa og búfjárganga, auk girðinga, ristarhliða, ljósastaura og annars vegbúnaðar.
Nýi vegurinn og brúin munu stytta leiðina frá Árnesi að Landvegamótum um 14 km og tengja þessi svæði mun betur saman en nú er.
Áætlanir gera ráð fyrir að umferð um nýjan Búðafossveg verði um 500 ökutæki á dag.

Búðafossvegur.