Vegagerðin býður hér með út nýbyggingu Búðafossvegar, á um 7,4 km löngum kafla frá Þjórsárdalsvegi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi að Landvegi í Rangárþingi – Ytra.
Innifalið í verkinu er gerð malbikaðs hringtorgs á gatnamótum Þjórsárdalsvegar og Búðafossvegar auk tengivega / heimreiða á fjórum stöðum, alls um 2,6 km.
Byggja skal nýja 204 metra langa brú yfir Þjórsá. Brúin verður staðsett norðaustan við Búðafoss. Vegna fiskgengdar eru skorður settar á vinnu í farvegi Þjórsár sem hefur áhrif á byggingu varnargarða.
Setja upp tvenn reiðgöng, Ø3,6 m, úr stálplötum, önnur ræsi og búfjárgöng, girðingar, ristarhlið, ljósastaurar og annan vegbúnað í samræmi við teikningar.
Helstu magntölur í vegagerð
Helstu magntölur í brúargerð
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með föstudeginum 17. júlí 2026.
Vegagerðin býður bjóðendum í framkvæmdir við Búðafossveg til vettvangsferðar fimmtudaginn 27. ágúst.
Mæting er í Hvamm 3 klukkan 10, þar sem rúta bíður hópsins.
Í ferðinni verður m.a. farið að efnishaugum við Hvammsvirkjun, ekið að vegmótum Búðafossvegar og að fiskeldi GeoSalmo. Einnig verður farið að fyrirhuguðu hringtorgi á Þjórsárdalsvegi og að efnistökusvæði við Þverá.
Skráning í ferðina er hér: Vettvangsferð Vegagerðarinnar um Búðafossveg – Fill out form
Tilboði skal skila rafrænt í TendSign útboðskerfinu fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 22. september 2026.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
| Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik kr. |
|---|---|---|---|
Ístak hf., Mosfellsbær | 3.578.480.766 | 123,0 | 1.046.149.560 |
Eykt ehf., Fossvélar ehf., Suðurverk hf. | 3.237.212.469 | 111,3 | 704.881.263 |
PK Verk ehf., Hafnarfirði | 3.089.255.481 | 106,2 | 556.924.275 |
ÞG verktakar, Reykjavík | 3.053.019.601 | 105,0 | 520.688.395 |
Áætlaður verktakakostnaður | 2.908.407.213 | 100,0 | 376.076.007 |
Borgarverk ehf., Borgarnesi | 2.532.331.206 | 87,1 | 0 |