12. nóvember 2026
Samið um nýbygg­ingu Búða­foss­vegar

Í dag, fimmtudaginn 12. nóvember, var skrifað undir samning um nýbyggingu Búðafossvegar frá Þjórsárdalsvegi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi að Landvegi í Rangárþingi ytra. Verkið felur einnig í sér nýbyggingu 204 metra stálbitabrúar yfir Þjórsá, tengivegi og hringtorg. Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, og Atli Þór Jóhannesson, framkvæmdarstjóri Borgarverks, undirrituðu samninginn.

Vegagerðin bauð verkið út um miðjan júlí. Um er að ræða nýbyggingu Búðafossvegar, á um 7,4 km löngum kafla frá Þjórsárdalsvegi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi að Landvegi í Rangárþingi ytra. Alls bárust fimm tilboð í verkið en nú hefur verið samið við Borgarverk sem átti lægsta tilboðið.

Auk byggingar Búðafossvegar verður byggt nýtt hringtorg á gatnamótum Þjórsárdalsvegar og Búðafossvegar. Þá verða lagðir tengivegir og heimreiðar á fjórum stöðum, samtals um 2,6 km.

Einnig verður byggð ný 204 metra löng tvíbreið stálbitabrú yfir Þjórsá, norðaustan við Búðafoss, milli jarðanna Minna-Hofs og Vindáss. Brúin mun þvera ána á svokölluðu Hofsvaði, um kílómetra ofan við Búðafoss.

Í verkinu felst einnig uppsetning tveggja reiðganga úr stálplötum, ræsa og búfjárganga, auk girðinga, ristarhliða, ljósastaura og annars vegbúnaðar.

Nýi vegurinn og brúin munu stytta leiðina frá Árnesi að Landvegamótum um 14 km og tengja þessi svæði mun betur saman en nú er.

Áætlanir gera ráð fyrir að umferð um nýjan Búðafossveg verði um 500 ökutæki á dag. Áformað er að framkvæmdir hefjist um áramótin 2026/2027 og ljúki í árslok 2029.

Skrifað undir samning um Búðafossveg

Skrifað undir samning um Búðafossveg

Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar og Atli Þór Jóhannesson framkvæmdastjóri Borgarverks

Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar og Atli Þór Jóhannesson framkvæmdastjóri Borgarverks

Óskar Gísli Sveinsson verkefnisstjóri Vegagerðarinnar, Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar, Atli Þór Jóhannesson framkvæmdastjóri Borgarverks og Ingibjörg Guðmundsdóttir umsjónarmaður Vegagerðarinnar

Óskar Gísli Sveinsson verkefnisstjóri Vegagerðarinnar, Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar, Atli Þór Jóhannesson framkvæmdastjóri Borgarverks og Ingibjörg Guðmundsdóttir umsjónarmaður Vegagerðarinnar