Vegagerðin býður hér með út eftirlit og ráðgjöf með útboðsverkinu „Búðafossvegur (23), Þjórsárdalsvegur – Landvegur“. Verkið innifelur nýbyggingu Búðafossvegar (23) sem mun liggja á milli Landvegar (26) í Rangárþingi ytra og Þjórsárdalsvegar (32) í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með 18. maí 2026.
Tilboðum er skilað rafrænt í útboðskerfinu fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 18. júní 2026.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
| Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik kr. |
|---|---|---|---|
Verkís hf., Reykjavík | 210.091.648 | 168,1 | 61.591.648 |
Verkfræðistofa GÞS ehf., Selfoss | 170.000.000 | 136,0 | 21.500.000 |
VSÓ ráðgjöf, ehf., Reykjavík | 159.749.200 | 127,8 | 11.249.200 |
Hnit verkfræðistofa hf., Reykjavík | 155.000.000 | 124,0 | 6.500.000 |
Mannvit hf, Kópavogur | 148.500.000 | 118,8 | 0 |
Áætlaður verktakakostnaður | 125.000.000 | 100,0 | 23.500.000 |