Ný, tvíbreið brú yfir Hverfisfljót er 74 m löng. Brúin er stálbitabrú í þremur höfum með steyptu gólfi. Í verkinu var einnig vegagerð til að tengja nýja brú við núverandi vegakerfi. Nýr vegur og ný brú eru í nýju vegstæði á 1,1 km löngum kafla og endurbyggður vegur í núverandi vegstæði á 1,1 km löngum kafla. Nýir vegir eru því um 2,1 km. Einnig var byggður nýr áningarstaður við Hverfisfljót.
Tilgangur framkvæmdarinnar er að fækka einbreiðum brúm á Hringvegi, auka umferðaröryggi og stuðla að greiðari samgöngum. Með nýjum vegi, nýrri tvíbreiðri brú á Hverfisfljót og nýjum og stærri áningarstað eykst umferðaröryggi til muna og umferð um svæðið verður greiðari. Á nýjum áningarstað er ægifagurt útsýni í átt að Lómagnúpi og Öræfajökli. Nýja brúin kom í staðinn fyrir eldri 60 metra langa einbreiða brú sem var reist árið 1968. Brúin yfir Hverfisfljót var opnuð fyrir umferð í nóvember 2022.
Skrifað var undir verksamning vegna byggingar brúarinnar þann 6. ágúst 2021. ÞG Verk áttu lægsta tilboð í verkið eða 1.425 m.kr. sem var nánast sama upphæð og áætlaður verktakakostnaður. Framkvæmdir hófust í september sama ár.
Verkfræðistofan Mannvit annaðist eftirlit. Verkefnastjórn og umsjón framkvæmda var í höndum framkvæmdadeildar Vegagerðarinnar. Brúarvinnuflokkur Vegagerðarinnar sá um niðurrekstur staura vegna brúarinnar.
Brúin yfir Hverfisfljót var hluti af sérstöku tímabundnu fjárfestingarátaki ríkisins sem fólst í að skipta út 7 einbreiðum brúm á Hringveginum.