Borgarlínan, lota 1, liggur frá Hamraborg í Kópavogi, yfir nýja Fossvogsbrú, gegnum miðbæ Reykjavíkur og nýtt Vogahverfi að Krossamýrartorgi á Ártúnshöfða. Leiðin er alls um 14,5 km og samhliða er gert ráð fyrir um 18 km af hjóla- og göngustígum. Verkefnið inniheldur einnig byggingu Fossvogsbrúar, þverun Sæbrautar á stokkloki, brýr yfir Elliðaár við Geirsnef og brú til hæðaraðlögunar á Ártúnshöfða. Stórar skiptistöðvar verða við Hamraborg, Landspítala og í Vogabyggð. Nánari upplýsingar má finna á Borgarlínan.is og Verksjá.is.
Nánar má fræðast um Borgarlínuna á vef verkefnisins, borgarlinan.is Þar er m.a. að finna frumdragaskýrslu að fyrstu lotu.
Verkefnið er hluti af Samgöngusáttmálanum sem ríkið og sex sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu (Garðabær, Hafnarfjörður, Kópavogur, Mosfellsbær, Reykjavík og Seltjarnarnes) hafa undirritað.
Samgöngusáttmálinn felur í sér sameiginlega framtíðarsýn og heildarhugsun fyrir skipulagssvæðið. Markmiðið er að auka öryggi, bæta samgöngur fyrir alla ferðamáta og minnka tafir, stórefla almenningssamgöngur og draga úr mengun af völdum svifryks og losun gróðurhúsalofttegunda til að standa við loftslagsmarkmið stjórnvalda og sveitarfélaga.

Borgarlínan lota 1, Hamraborg Ártúnshöfði.