Suður­lands­braut-Fjörður

  • TegundSamgöngusáttmálinn
  • StaðaFramkvæmd ekki hafin
  • Markmið
      Greiðar samgöngurÖruggar samgöngurJákvæð byggðaþróunUmhverfislega sjálfbærar samgöngur
  • Heimsmarkmið
      11. Sjálfbærar borgir og samfélög13. Aðgerðir í loftslagsmálum
  • Flokkar
      SamgöngusáttmáliBorgarlínaAlmenningssamgöngur
  • Svæði
    • Höfuðborgarsvæðið

Borgarlínan, lota 4, mun liggja frá Suðurlandsbraut, eftir Kringlumýrarbraut, Hafnarfjarðarvegi og Reykjavíkurvegi niður í Fjörð og þannig tengja Reykjavík,Kópavog, Garðabæ og Hafnarfjörð. Leiðin er um 9,5 km. Nánari upplýsingar má finna á Borgarlínan.is og Verksjá.is.

 

Verkefnið er hluti af Samgöngusáttmálanum sem ríkið og sex sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu (Garðabær, Hafnarfjörður, Kópavogur, Mosfellsbær, Reykjavík og Seltjarnarnes) hafa undirritað.

Samgöngusáttmálinn felur í sér sameiginlega framtíðarsýn og heildarhugsun fyrir skipulagssvæðið. Markmiðið er að auka öryggi, bæta samgöngur fyrir alla ferðamáta og minnka tafir, stórefla almenningssamgöngur og draga úr mengun af völdum svifryks og losun gróðurhúsalofttegunda til að standa við loftslagsmarkmið stjórnvalda og sveitarfélaga.


Borgarlínan, lota 4.

Borgarlínan, lota 4.