Vinna við uppstillingu fyrstu stálbitanna í Ölfusárbrú gengur vel en fyrstu stálbitarnir voru fluttir til landsins í apríl. Von er á næsta skipi með stálbitum seinnipartinn í júní. Bitarnir verða fluttir til Þorlákshafnar og þar með verða allir stálbitar í brúna komnir til landsins en þeir eru framleiddir í verksmiðjum Norvik í Póllandi.

Framkvæmdir við Ölfusárbrú í maí 2026. Mynd: Anton Brink
Byrjað er að rafsjóða samtengingar bitanna. Einnig er unnið að því að koma lagnakerfi í brúargrindina en í brúna verða settar lagnir veitustofnana fyrir heitt og kalt vatn, háspennustrengi og ljósleiðara. Gengið verður frá öllum lögnum í brúargrindina áður en hún verður færð yfir ána.
Starfsmönnum við verkið hefur fjölgað vegna þessara verkþátta og eru nú um 60 starfsmenn á framkvæmdasvæðinu.
Lokið er við að steypa undirstöður landstöpla Ölfusárbrúar og unnið að uppslætti stöpla ofan á þær. Í Laugardælaeyju er búið að steypa neðri hluta á undirstöðum turnsins sem þar mun rísa og unnið við uppslátt og járnbendingu fyrir efri hluta undirstöðunnar.
Austan við Selfoss er unnið við byggingu vegbrúar sem reist verður yfir nýja hluta Hringvegarins.
Vinna við jarðvegsskipti og lagnaskurði í vegstæðinu austan við Ölfusá er komin vel á veg og áætlað er að hefja fljótlega útlögn styrktar- og burðarlaga undir malbik.
Vestan Ölfusár er áfram unnið við fergingar vegstæðisins í Hellismýri á um 700 m löngum kafla en fargið þarf að standa fram á næsta ár. Vestan við mýrina er unnið við skeringar í vegstæði, jarðvinnu fyrir undirgöng sem koma undir Hringveginn við Einholtsveg, gröft lagnaskurða og tilfærslu lagna veitustofnana.
Af öryggisástæðum er öll óviðkomandi umferð óheimil á framkvæmdasvæðinu, vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og aka varlega.