22. apríl 2026
Fyrsta stál­ið í Ölfusár­brú komið til lands­ins

Fyrsta skipið með stálbitum í Ölfusárbrú kom til Þorlákshafnar um páskana. Skipið sigldi frá Gdansk en stálbitarnir eru framleiddir í verksmiðjum Norvik í Póllandi. Í þessari ferð kom um helmingur af þeim bitum sem notaðir verða í burðargrind nýju brúarinnar.

Bitarnir sem komu til landsins eru engin smásmíði, tveggja metra háir og um 20 metra langir, þyngstu einingarnar vega um 40 tonn.

Bitarnir sem komu til landsins eru engin smásmíði, tveggja metra háir og um 20 metra langir, þyngstu einingarnar vega um 40 tonn.

Allt burðarkerfi brúarinnar verður úr stáli. Bitarnir sem komu til landsins eru engin smásmíði, tveggja metra háir og um 20 metra langir, þyngstu einingarnar vega um 40 tonn. Stærstu kranar landsins voru notaðir til að hífa þá upp úr skipinu á volduga flutningabíla sem fluttu stálið að kvöldlagi, í lögreglufylgd, á verkstað.

Í þessu fyrsta skipi komu um helmingur af þeim bitum sem notaðir verða í burðargrind brúarinnar. Allir bitarnir eru komnir á verkstað og hafin er vinna við að stilla þeim upp fyrir samsetningu.

Nánar er sagt frá flutningunum á myndbandi sem má sjá hér að neðan.

Nú, þegar vinna við samsetningu burðargrindarinnar er hafin, fjölgar starfsfólki á verkstað um tuttugu og eru því alls sextíu manns að störfum við brúarframkvæmdina.

Staða framkvæmda er sú að búið er að steypa undirstöður landstöpla Ölfusárbrúar og unnið við uppslátt stöpla ofan á þær. Í Laugardælaeyju er lokið við fyllingu og steypu þrifalags og unnið við upplsátt og járnbendingu fyrir undirstöðu turnsins sem þar mun rísa.

Austan við Selfoss er unnið að byggingu vegbrúar sem reist verður yfir nýja hluta Hringvegarins. Þaðan verða vegtengingar að golfvellinum og Laugardælum annars vegar og hins vegar að Gaulverjabæjarvegi. Uppsteypu stöpla brúarinnar lauk fyrir síðustu áramót og nýlokið er steypu brúardekksins.

Vinna við jarðvegsskipti og lagnaskurði í vegstæðinu austan við Ölfusá er komin vel á veg fyrir utan styrktar- og burðarlög sem ekki er byrjað á.

Vestan Ölfusár er unnið við fergingar vegstæðisins í Hellismýri á um 700 m löngum kafla. Fargið er nú komið í um hálfs meters hæð yfir endanlegt vegyfirborð. Fargið þarf að standa fram á næsta ár. Vestan við mýrina er unnið við skeringar í vegstæði, gröft lagnaskurða og tilfærslu lagna veitustofnana.

Af öryggisástæðum er öll óviðkomandi umferð óheimil á framkvæmdasvæðinu. Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og aka varlega.

Stálbitarnir voru fluttir að kvöldlagi á verkstað.

Stálbitarnir voru fluttir að kvöldlagi á verkstað.

Höskuldur Tryggvason skoðar stálbitana í höfninni í Þorlákshöfn.

Höskuldur Tryggvason skoðar stálbitana í höfninni í Þorlákshöfn.

Unnið að samsetningu stálbitanna á verkstað. Mynd/Anton Brink

Hér sést veglína hins nýja Hringvegar vel og brúarstæði nýju Ölfusárbrúarinnar yfir eftir Laugardælaeyju. Mynd/Anton Brink

Hér sést veglína hins nýja Hringvegar vel og brúarstæði nýju Ölfusárbrúarinnar yfir eftir Laugardælaeyju. Mynd/Anton Brink