Vegagerðin tók upp nýtt ábendingakerfi í febrúar árið 2023. Á dögunum barst tíu þúsundasta ábendingin á 1.113 dögum. Það þýðir tæplega 9 ábendingar á dag.

Vaktstöð Vegagerðarinnar í Garðabæ. Starfsfólk vöktunar og upplýsinga taka við flestum ábendingum í gegnum síma 1777.
Ábendingarnar berast annars vegar í gegnum „getum við aðstoðað“ flipa á vefsíðu Vegagerðarinnar og hins vegar í gegnum síma umferðarþjónustunnar 1777 þar sem starfsfólk vöktunar og þjónustu skráir ábendingar sem ekki er hægt að svara strax. Verkefnið er fjölbreytt þar sem ábendingarnar eru af ýmsum toga og snúa að fjölmörgum þáttum í starfsemi Vegagerðarinnar. Stór hluti þeirra tengist því hvort vegfarendur komist leiðar sinnar á milli staða, en einnig berast margar fyrirspurnir um vegbúnað og töluvert er um tjónstilkynningar. Þá eiga málefni almenningssamgangna sinn sess í kerfinu og samskiptadeild fær ýmsar fyrirspurnir frá áhugasömum landsmönnum sem velta fyrir sér allt frá framgangi framkvæmda yfir í möguleg umsvif álfa í vegagerð.
Flestar ábendingar fara þó til þjónustustöðva Vegagerðarinnar sem sinna þjónustu á vegum úti, gera við holur og laga stikur svo eitthvað sé nefnt. Almenningur er afar duglegur við að upplýsa Vegagerðina um þessa hluti, holur sem hafa myndast, stikur sem vantar eða eru skítugar o.s.frv.
Stefna Vegagerðarinnar er að gera ávallt betur í þjónustu við vegfarendur og fólk er hvatt til að hafa samband í gegnum vefsíðuna eða þjónustusímann 1777.

Ábendingar til Vegagerðarinnar snúa oft að ástandi vega.