Sumarstörf - þjón­ustu­stöðvar á Austur­svæði

  • StarfssvæðiAusturland
  • Tegund starfsSumarstörf
  • Starfshlutfall100%
  • Umsóknarfrestur18. febrúar 2026

Ertu að leita að fjölbreyttu og spennandi starfi þar sem þú færð að njóta útiveru? Við erum að leita að kraftmiklum og áhugasömum einstaklingum til að ganga til liðs við okkur í sumar.

Opið er fyrir umsóknir um sumarstörf á starfstöðvum á Austursvæði.
Starfsstöðvarnar eru staðsettar á Reyðarfirði, Fellabæ og Höfn. 
Vinsamlegast takið fram í umsókn undir athugasemdum á hvaða starfsstöð sótt er um. 

Helstu verkefni

Vinnuhópar eru starfræktir á þjónustustöðvum Vegagerðarinnar yfir sumartímann og sinna þeir almennu viðhaldi vegsvæða. 

  • Vinna við umferðarmerki, vegvísa, stikur, málningarvinna. 
  • Holuviðgerðir, ristahlið, hreinsun vegsvæðis. 
  • Tiltekt og viðhald í áhaldahúsi og lóð. 
  • Önnur tilfallandi störf er upp kunna að koma hverju sinni.

Vélaverkstæði Reyðarfirði
Vélaverkstæði sinnir almennu viðhaldi og lagfæringum

  • Viðhald og lagfæringar á vinnuvélum, tækjum og bifreiðum
  • Viðhald og lagfæringar á vegbúnaði
  • Önnur tilfallandi störf er upp kunna að koma hverju sinni

Hæfniskröfur

  • Almenn menntun
  • 18 ára eða eldri 
  • Almennt ökuskírteini
  • Góð öryggisvitund
  • Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og hæfni að vinna í hóp
  • Góð kunnátta í íslensku eða ensku

Frekar upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdastofnun landsins með gríðarlega fjölbreytta verkefnaflóru. 

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Umsókn skal fylgja ferilskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og upplýsingar um fyrri störf. Öllum umsóknum um starfið verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf á bilinu 15. maí-6. júní.

Nánari upplýsingar veitir

Hinrik Þór Einarsson
yfirverkstjóri

hinrik.th.einarsson
@vegagerdin.is
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson
yfirverkstjóri

g.runar.sigurdsson
@vegagerdin.is