Sumarstörf á þróun­ar- og þjón­ustu­sviði

  • StarfssvæðiHöfuðborgarsvæðið
  • Tegund starfsSkrifstofustörf
  • Starfshlutfall100%
  • Umsóknarfrestur2. mars 2026

Vegagerðin leitar eftir einstaklingum til að takast á við fjölbreytt og spennandi verkefni í sumar á þróunar- og þjónustusviði. Um dagvinnustörf er að ræða og starfstöðin er á höfuðborgarsvæðinu. Um er að ræða 3 störf á þróunarsviði og 1 starf á þjónustusviði.

Vinsamlegast takið fram í umsókn undir athugasemdum hvort sótt er um á þróunar- eða þjónustusviði.

Helstu verkefni

Þróunarsvið

  • Skráning og vinnsla landupplýsinga.
  • Söfnun gagna sem tengjast heildstæðu mati á öryggi vegakerfisins.
  • Söfnun upplýsinga um þungaumferð.
  • Framsetning á umferðarupplýsingum.
  • Gagnasöfnun og greining á raski á gróðurlendi og votlendi.
  • Verkefni á sviði orkuskipta í samgöngum.

Þjónustusvið

  • Aðstoða við gerð á nýju fræðsluefni fyrir Vegagerðarskólann.
  • Skrifa skýrar og hnitmiðaðar textalýsingar við fræðsluefni.
  • Aðstoða við að útbúa leiðbeiningar.
  • Útbúa stuttar og skýrar námslýsingar fyrir fræðsluefni.
  • Skipuleggja, útbúa handrit og taka viðtöl við starfsfólk um verklag, reynslu og þekkingu.
  • Upptaka á stuttum fræðslumyndböndum.

Hæfniskröfur

Menntunarkröfur

Þróunarsvið

  • Háskólanemi eða önnur menntun sem nýtist í starfi, s.s. landfræði, jarðfræði, tæknifræði, skipulagsfræði, verkfræði.

Þjónustusvið

  • Háskólanemi eða önnur menntun sem nýtist í starfi s.s. mannauðsstjórnun eða kennslufræði.

Aðrar hæfnikröfur

  • Góð öryggisvitund.
  • Reynsla sem nýtist í starfi kostur.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og hæfni til að vinna í hóp.
  • Góð kunnátta í íslensku og ensku.
  • Kunnátta í framsetningu og úrvinnslu gagna.
  • Kunnátta í vinnslu með landupplýsingakerfi.

Frekar upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Í umsókninni komi fram upplýsingar um fyrri störf og þær hæfnikröfur sem óskað er eftir, auk afrita af prófskírteinum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. 

Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdastofnun landsins með gríðarlega fjölbreytta verkefnaflóru. Vegagerðin þróar og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi. Um 370 starfsmenn Vegagerðarinnar starfa á 18 starfsstöðvum víðsvegar um landið.

Nánari upplýsingar veitir

Valtýr Þórisson
forstöðumaður á þróunarsviði

valtyr.thorisson
@vegagerdin.is
Svanur Þorvaldsson
forstöðumaður á þjónustusviði

svanur.thorvaldsson
@vegagerdin.is