Hefur þú gaman af því að leysa vandamál eða hefur þú brennandi áhuga á tölvum og tækni?
Þá gæti þetta verið starfið fyrir þig.
Vegagerðin leitar að liðsauka í teymi notendaþjónustu á deild upplýsingatækni og gagnaþjónustu á starfstöð okkar í Garðabæ. Upplýsingatækni og gagnaþjónusta tilheyrir fjármálasviði og starfa 13 starfsmenn á deildinni.
Starfið felst í notendaþjónustu við starfsfólk Vegagerðarinnar, viðveru á þjónustuborði ásamt fjölbreyttum verkefnum tengdum rekstri upplýsingakerfa stofnunarinnar svo sem:
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Í umsókninni komi fram upplýsingar um fyrri störf og upplýsingar um þær hæfnikröfur sem óskað er eftir, auk afrita af prófskírteinum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdastofnun landsins með gríðarlega fjölbreytta verkefnaflóru. Vegagerðin þróar og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi. Um 370 starfsmenn Vegagerðarinnar starfa á 18 starfsstöðvum víðsvegar um landið