Gagna­sérfræð­ingur hjá Vega­gerð­inni

  • StarfssvæðiHöfuðborgarsvæðið
  • Tegund starfsSérfræðistörf
  • Starfshlutfall100%
  • Umsóknarfrestur2. mars 2026

Vegagerðin leitar að framsýnum og öflugum gagnasérfræðingi sem býr yfir brennandi áhuga á að taka þátt í gagnauppbyggingu hjá Vegagerðinni.  Upplýsingatækni og gagnaþjónusta tilheyrir fjármálasviði og starfa 13 starfsmenn á deildinni. Gögn gegna mikilvægu hlutverki innan Vegagerðarinnar og eru gagnamál eitt af sex áhersluatriðum í stefnu stofnunarinnar 2024-2028. Í stefnunni eru sett markmið um að bæta aðgengi og miðlun gagna ásamt eflingu greininga.  
 
Framundan eru flókin og krefjandi verkefni sem miða að faglegri stýringu gagna, bættri nýtingu þeirra og auðveldara aðgengi m.a. með  uppbyggingu vöruhúss gagna og tryggja þannig að breytt gagnauppbygging leiði til þess að taka fyrstu skrefin í vélnámi og gervigreind. 

Helstu verkefni

  • Uppbygging á vöruhúsi gagna og tengdum lykilverkefnum. 
  • Smíði og viðhald á gagnapípum. 
  • Uppsetning á gagnagrunnum á borð við Oracle, MSSQL og PostgreSql¿. 
  • Samræming á gagnavinnslu og gæði gagna. 

Hæfniskröfur

  • Brennandi áhugi á mæligögnum og öðrum gögnum. 
  • Framúrskarandi skilningur á gagnauppbyggingu og skýr sýn á hvernig hún getur nýst í opinberri þjónustu.¿ 
  • Þekking og reynsla á Python forritun.
  • Hæfni til að nýta gögn og mælikvarða til ákvarðanatöku og eftirfylgni. 
  • Nám tengt gagnavinnslu og forritun er kostur.
  • Þekking á öðrum forritunarmálum er kostur. 
  • Nýsköpunarhugsun og vilji til að prófa nýjar lausnir og nálganir. 

Frekar upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Í umsókninni komi fram upplýsingar um fyrri störf og upplýsingar um þær hæfnikröfur sem óskað er eftir, auk afrita af prófskírteinum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. 

Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdastofnun landsins með gríðarlega fjölbreytta verkefnaflóru. Vegagerðin þróar og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi. Um 370 starfsmenn Vegagerðarinnar starfa á 18 starfsstöðvum víðsvegar um landið

Nánari upplýsingar veitir

Kolbrún Halldórsdóttir
forstöðukona upplýsingatækni og gagnaþjónustu

kolbrun.halldorsdottir
@vegagerdin.is