Vegagerðin leitar að öflugum aðila í starf birgðasérfræðings á rekstrardeild. Rekstrardeild tilheyrir fjármálasviði og starfa 16 manns á deildinni. Vegagerðin er með 19 lagera staðsetta víðsvegar um landið. Lager Vegagerðarinnar geymir efni fyrir nýframkvæmdir og viðhald á vegunum ásamt rekstrarvörum og eru lagerarnir ýmist innandyra sem utan.
Áhugasamir einstaklingar eru hvattir til að sækja um óháð kyni. Umsókn skal fylgja ferilskrá og mynd af ökuréttindum. Öllum umsóknum um starfið verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdastofnun landsins með gríðarlega fjölbreytta verkefnaflóru. Vegagerðin þróar og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi. Um 350 starfsmenn Vegagerðarinnar starfa á 18 starfsstöðvum víðsvegar um landið.