Vegagerðin óskar eftir tilboðum í eftirlit og ráðgjöf með útboðsverkinu Vestfjarðarvegur (60) um Gufudalssveit, Kinnarstaðir – Þórisstaðir. Verkið felur í sér nýbyggingu Vestfjarðarvegar á um 2,7 km kafla ásamt byggingu 260 m langrar steyptrar brúar yfir Þorskafjörð. Vegurinn er alfarið byggður í nýju vegsvæði sem tengist Vestfjarðarvegi í báða enda. Brúin er steypt eftirspennt bitabrú í sex höfum.
Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfismats og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfi bjóðanda og verðtilboð.
Verklok framkvæmdarinnar eru áætluð í 30. júní 2024
Útboðsgögn eru aðgengileg og afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með sunnudeginum 12. september 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 19. október 2021.
Ekki verður haldnir sérstakir opnunarfundir en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu. Föstudaginn 22. október 2021 verður bjóðendum tilkynnt stigagjöf í hæfnisvali og verðtilboð hæfra bjóðenda.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.
Vegagerðin óskaði eftir tilboðum í eftirlit og ráðgjöf með útboðsverkinu Vestfjarðavegur (60) um Gufudalssveit, Kinnarstaðir – Þórisstaðir. Verkið felur í sér nýbyggingu Vestfjarðavegar á um 2,7 km kafla ásamt byggingu 260 m langrar steyptrar brúar yfir Þorskafjörð. Vegurinn er alfarið byggður í nýju vegsvæði sem tengist Vestfjarðavegi í báða enda. Brúin er steypt eftirspennt bitabrú í sex höfum.
Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfismats og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfi bjóðanda og verðtilboð.
Verklok framkvæmdarinnar eru áætluð í 30. júní 2024
Eftir lok tilboðsfrests, þriðjudaginn 19. október 2021, var bjóðendum tilkynnt um nöfn þátttakenda í útboðinu. Allir bjóðendur uppfylltu hæfisskilyrði útboðsins og stóðust hæfnimat.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik kr. |
---|---|---|---|
Hnit verkfræðistofa hf., Reykjavík | 87.282.360 | 120,1 | 21.570.160 |
Mannvit hf, Kópavogur | 79.000.000 | 108,7 | 13.287.800 |
Áætlaður verktakakostnaður | 72.680.000 | 100,0 | 6.967.800 |
Verkís hf., Reykjavík | 65.712.200 | 90,4 | 0 |