Kinnar­stað­ir – Þóris­stað­ir

  • TegundBrýr
  • StaðaFramkvæmd lokið
  • Verktími2021–2024
  • Markmið
      Greiðar samgöngurJákvæð byggðaþróunÖruggar samgöngur
  • Heimsmarkmið
      8. Góð atvinna og hagvöxtur
  • Flokkar
      BrúBundið slitlagVegstytting
  • Svæði
    • Vestfirðir

Ný brú yfir Þorskafjörð er 260 m löng, tvíbreið, staðsteypt, eftirspennt bitabrú í sex höfum. Auk hennar voru gerðar vegfyllingar á 2,7 km kafla. Verklok voru áætluð í lok júní 2024 og var framkvæmdin því langt á undan áætlun en verklok voru í október 2023. Með nýrri brú lagðist af um 10 km kafli á núverandi Vestfjarðarvegi ásamt einbreiðri brú á Þorskafjarðará frá árinu 1981. Framkvæmdirnar eru hluti af stærra verkefni í Gufudalssveit sem er vegagerð um Teigsskóg ásamt þverunum á Djúpafirði og Gufufirði.

 

Efnisyfirlit

Tengd útboð

Við lok þessara framkvæmda þarf ekki lengur að aka um Hjallaháls sem er í 336 metra hæð.  Þegar öllum framkvæmdum við Vestfjarðaveg í Gufudalssveit verður lokið verður heildarstytting vegarins um 22 km, þ.e. þegar lokið hefur verið við að þvera Gufufjörð og Djúpafjörð. Aksturstími styttist um 30 mínútur.

 

Við nýja brú yfir Þorskafjörð.

Við nýja brú yfir Þorskafjörð.