Vestfjarðavegur (60) um Gufudalssveit, brýr á Djúpafjörð við Grónes og Gufufjörð, eftirlit og ráðgjöf
Vegagerðin býður hér með út eftirlit og ráðgjöf með byggingu tveggja steyptra brúa á Vestfjarðarvegi um Gufudalssveit. Annars vegar er um að ræða 58 m langa brú á Djúpafjörð við Grónes og hins vegar um 130 m langa brú á Gufufjörð. Innifalið í verkinu er rif á núverandi 119 m bráðabirgðarbrú á Gufufirði ásamt efnisflutningum úr núverandi vinnuplönum og gerð grjótvarnar/rofvarnar.
Val ráðgjafa fer fram á grundvelli hæfnisvals og verðs. Bjóðanda ber að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfni bjóðanda og verðtilboð.
Verklok eru áætluð í lok árs 2026.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með þriðjudeginum 23. desember 2025 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 27. janúar 2026.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og föstudaginn 30. janúar 2026 verður verðtilboð hæfra bjóðenda kynnt.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.