Vegagerðin óskar eftir tilboðum í sérleyfi til fólks- og vöruflutninga á milli Mjóafjarðar og Neskaupsstaðar fyrir tímabilið 2026-2029.
Um er að ræða sérleyfissamning og skal þjónustan hefjast 1. október 2026. Samningstími er 3 ár með möguleika á framlengingu tvisvar sinnum um eitt ár í senn.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með fimmtudeginum 25. júní 2026.
Tilboði skal skila rafrænt í TendSign útboðskerfinu fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 21. júlí 2026.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.