Útboðsnúmer 26-049
Reykja­nesbraut (41), Sæbraut í stokk – Undir­búnings­fram­kvæmd­ir, verk­hönn­un

  • Staða útboðs

    • 1Auglýst mars 2026
    • 2Opnun tilboða apríl 2026
    • 3Samningum lokið

11. mars 2026Útboðsauglýsing

Vegagerðin óskar eftir tilboði í verkhönnun á bráðabirgðaleiðum vegna framkvæmda við Sæbraut í stokk. Um er að ræða gerð verkhönnunargagna fyrir rif, aðstöðusköpun og hjáleiðir fyrir Sæbraut.

Verki skal að fullu lokið  30. nóvember 2026.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með 13. mars 2026.

Haldinn verður kynningarfundur á Teams föstudaginn 20. mars nk. kl. 13 þar sem útboðið verður kynnt sérstaklega.

Tilboðum er skilað rafrænt í  útboðskerfinu fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 14. apríl 2026.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.


21. apríl 2026Opnun tilboða

BjóðandiTilboð kr.HlutfallFrávik kr.
Áætlaður verktakakostnaður
105.300.000
100,0
4.118.282
Efla hf, Reykjavík
101.181.718
96,1
0