Útboðsnúmer 25-120
Áætl­unar­­flug á Íslandi – Sérleyfi fyrir Vega­­gerð­­ina, Reykja­­vík – Vest­manna­eyjar – Reykja­­vík 2026-2029

  • Staða útboðs

    • 1Auglýst febrúar 2026
    • 2Opnun tilboða
    • 3Samningum lokið

Áætl­unar­flug á Íslandi – Sérleyfi fyrir Vega­gerð­ina, Reykja­vík – Vestmannaeyjar – Reykja­vík 2026-2029

13. febrúar 2026Útboðsauglýsing

Vegagerðin býður hér með út rekstur á áætlunarflugi á Íslandi – sérleyfissamningur, á eftirfarandi flugleið:
1. Reykjavík – Vestmannaeyjar– Reykjavík
Endurgreiðslu kostnaðar sem af rekstri í áætlunarflugi leiðir að frádregnum tekjum, þ.e. að annast áætlunarflug með farþega og vörur til og frá Vestmannaeyjum, fer samkvæmt nánari skilgreiningu í útboðslýsingu.

Samningstími er 3 ár, frá 1. september 2026 til og með 30. nóvembert 2029, með möguleika á framlengingu , tvisvar sinnum um eitt ár í senn.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með föstudeginum 13. febrúar 2026 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 17. mars 2026.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.