Vegagerðin býður hér með út rekstur á áætlunarflugi á Íslandi – sérleyfissamningur, á eftirfarandi flugleið:
1. Reykjavík – Ísafjörður– Reykjavík
Endurgreiðslu kostnaðar sem af rekstri í áætlunarflugi leiðir að frádregnum tekjum, þ.e. að annast áætlunarflug með farþega og vörur til og frá Ísafirði, fer samkvæmt nánari skilgreiningu í útboðslýsingu.
Samningstími er 4 ár, frá 1. september 2026 til og með 31. ágúst 2030, með möguleika á framlengingu , einu sinni eitt ár.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með föstudeginum 23. janúar 2026 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 24. febrúar 2026.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
| Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik kr. |
|---|---|---|---|
Icelandair ehf., Hafnarfirði | 3.527.955.000 | 263,0 | 0 |
Áætlaður verktakakostnaður | 1.341.516.843 | 100,0 | 2.186.438.157 |