Útboðsnúmer 26-028
Áætl­unar­­flug á Íslandi: Akur­eyri – Gríms­ey – Akur­eyri & Akur­eyri – Vopna­fjörður – Þórs­höfn – Akur­eyri 2027-2030 – Sérleyfi fyrir Vega­­gerð­­ina

  • Staða útboðs

    • 1Auglýst maí 2026
    • 2Opnun tilboða
    • 3Samningum lokið

18. maí 2026Útboðsauglýsing

Vegagerðin býður hér með út rekstur á áætlunarflugi á Íslandi – sérleyfissamningur, á eftirfarandi flugleið:

• (F1) Akureyri – Grímsey – Akureyri
• (F2) Akureyri – Vopnafjörður – Þórshöfn – Akureyri

Samningstími er 3 ár, frá 1. apríl 2027 til og með 31. mars 2030, með möguleika á framlengingu tvisvar sinnum um eitt ár í senn. Heildarsamningstími getur því orðið allt að 5 ár.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum 18. maí 2026 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 16. júní 2026.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.