Þrengslavegur um Skóga­hlíða­brekku

  • TegundVegir
  • StaðaFrumdrög, for - og verkhönnun
  • Verktími2029–2031
  • Markmið
      Greiðar samgöngurJákvæð byggðaþróunÖruggar samgöngur
  • Heimsmarkmið
      8. Góð atvinna og hagvöxtur9. Nýsköpun og uppbygging
  • Flokkar
      EndurbæturAðskilnaður akstursstefnuStofnvegir
  • Svæði
    • Suðurland

Vegagerðin áformar endurbætur á Þrengslavegi um Skógarhlíðabrekku. Til skoðunar er 2,5 km kafli frá Þorlákshafnarvegi að afleggjara við Raufarhólshelli þar sem umferðartafir hafa átt til með að eiga sér stað. Framkvæmdin er í samræmi við markmið samgönguáætlunar um að staðla að greiðfærni og öryggi á stofnvegum.

Þrengslavegur hefur sætt umferðaraukningu á síðustu árum þökk sé aukinni atvinnuuppbyggingu í Þorlákshöfn, til að mynda við stórfellt landeldi. Umrædd Skógahlíðabrekka sem áformað er að framkvæma á er u.þ.b. 2,5 km löng og brött á köflum, mest 7,8%. Í mesta brattanum geta myndast umferðartafir á háannatíma þar sem fullestaðir flutningabílar eru lengi að fara upp brekkuna.

Áætlað er að bæta við akrein á leið upp í brekkuna, fjallshlíðarmeginn, til þess að draga úr umferðartöfum og gera minni bílum kleift að taka fram úr þyngri umferð á háannatíma. Til skoðunar er einnig að aðskilja akstursstefnur með vegriði og yrði vegurinn þá svokallaður 2+1 vegur. Ekki er talin þörf á því að bæta við akrein sjávarmegin þar sem þyrfti að ráðast í talsverðar landfyllingar til að koma veginum fyrir.

Áætlað er að hefja framkvæmdir 2029 og er framkvæmdartími miðaður við tvö ár.