Nýbygg­ing Jökul­dals­vegar – Gilsá – Arnórs­stað­ir

  • TegundVegir
  • StaðaKynningargögn
  • Markmið
      Öruggar samgöngur
  • Heimsmarkmið
      11. Sjálfbærar borgir og samfélög9. Nýsköpun og uppbygging
  • Svæði
    • Austurland

Komið í framkvæmd og framkvæmd lokið Fyrirhuguð er nýbygging Jökuldalsvegar (923) frá Gilsá að Arnórsstöðum á um 4 km löngum kafla, á milli stöðva 120 og 4200, sjá meðfylgjandi fylgiskjöl F1 – F4. Vegurinn mun koma til með að liggja um
land Arnórsstaða 1 og 2, Fljótsdalshéraði.

Um er að ræða nýbyggingu vegar á um 3,1 km kafla frá Gilsá um st. 120 og inn fyrir bæjarstæðið á Arnórsstöðum um stöð 3200. Þaðan er svo núverandi vegur endurbyggður á um 1,0 km kafla yfir Hnappá að st. 4200.

Markmið framkvæmdanna er að auka umferðaröryggi og greiðfærni á Jökuldalsvegi með bundnu
slitlagi. Nýr vegur mun liggja neðar í landinu, í meira skjóli fyrir vetrarveðrum, með mun minni bratta
og rýmri beygjum en núverandi vegur.

Fjárveitingar í verkið er á samgönguáætlun 2020, 280 m.kr. sem nýframkvæmd, auk 50 m.kr. sem
tengivegir bundið slitlag. Verkið var boðið út sumarið 2021. Verklok eru áætluð haustið 2022.

Nýbygging Jökuldalsvegar – Gilsá – Arnórsstaðir

Markmið framkvæmdanna er að auka umferðaröryggi og greiðfærni á Jökuldalsvegi með bundnu
slitlagi. Nýr vegur mun liggja neðar í landinu, í meira skjóli fyrir vetrarveðrum, með mun minni bratta
og rýmri beygjum en núverandi vegur.

Fjárveitingar í verkið er á samgönguáætlun 2020, 280 m.kr. sem nýframkvæmd, auk 50 m.kr. sem
tengivegir bundið slitlag. Verkið var boðið út sumarið 2021. Verklok eru áætluð haustið 2022.


Kynningargögn


Umhverfismat